Ágústa og Brynja
my space
20.08.2006 17:36:51 / moomies

Breytt blogg!!

Nú ætlum við að breyta um blogg! frá og með í dag bloggum við á nýja blogginu sem er www.brynjaogagusta.bloggar.is, svo verið velkomin að skoða þar! :D

Við reynum að vera duglegri við þetta :lol:

Brynja og Ágústa!


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 22:36:27 / Ágústa

sumarið

hey!!

Sumarið er tíminn....... og þetta hef ég verið að gera.....

* ég lærði að spila póker

*ég komst að því að ég er mjög léleg í að spila póker

 *ég komst að því að pabbi minn á von á barni með 36 ára gamalli kærustunni sinni!

*ég fékk styrk frá Evrópusambandinu og er því á leiðinni til Grikklands eftir u.þ.b 2 mánuði!

*ég lét mér leiðast í vinnunni minni

* við héldum kveðjupartý fyrir Sylvíu sem er flutt til Danmerkur

* fór einnig í nokkur önnur partý, t.d skemmtilegt the Doors partý í Keflavík og í Karaoke partý

 * ég er ekki góð í singstar!

* ég keypti ipodinn hans Nonna bróður og er rosa ánægð með hann!

* og keypti mér líka miða á Morrissey tónleikana sem eru í ágúst : )

..... já allt að gerast! Ég trúi því varla að ég sé á leiðinni til Grikklands! Þetta á vonandi eftir að ganga vel. Ég hlakka til þess að kynnast grískri menningu og vona að ég fái ekki of mikið menningarsjokk. Ég var að reyna að muna eftir einhverjum grískum hljómsveitum og ég man ekki eftir neinum? Reyndar er Tommy Lee grískur, og George Michael! Jáhá! ...... Svo eruð þið velkomin í heimsókn! Ég verð að minnsta kosti í hálft ár að vinna þarna úti ef að allt gengur vel. Ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga á meðan ég verð úti. Svo er Brynja á leiðinni til Barcelona, þannig við verðum nú duglegar að segja frá ævintýrum okkar!.; )

Um helgina er ég að fara á Borgarfjörð Eystri á tónleika með Emilíönu Torrini og Belle and Sebastian. Ég hef aldrei komið á Austurland áður þannig að þetta er spennandi!: ) Og svo er maður að fara að sofa í tjaldi aftur! Úff, ég vona að veðrið verði ágætt!

 hafið það nú gott um helgina!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 22:01:16 / Brynja

nýtt blogg eða ekki nýtt blogg...

....það er spurningin og mig langar að fá svar frá ykkur! hvernig líst ykkur á? er það moomies eða nýja bloggið sem er www.brynjaogagusta.bloggar.is?


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 21:09:14 / Brynja

twisted firestarter...!!

Jæja beibis! Hvað segist? Voðalega lítið hér á bæ, er að horfa á alveg glatað sjónvarpsefni sem heitir Sushi tv og er á sirkus.....bara eitthvað bull! Ég og Sigþór erum alvarlega að hugsa um það að flytja til Barcelona í 3 mánuði, sem sagt, september, október og nóvember. Þar sem ég er ekki að fara í skólann og Sigþór á svo mikið frí inni í vinnunni og við erum heimilislaus, fannst okkur þetta bara ágætis hugmynd! ;) Við keyptum meira að segja svona geisladiska sem kenna manni spænsku!! Bara svo að maður skilji eitthvað og geti sagt eitthvað á Spáni...hlakkar soldið til sko...!!

Sylvía okkar er að flytja til Danmerkur á morgun, ætlar á vit ævintýranna með Jasper! Við kvöddum hana á laugardagskvöldið, ég, Ágústa, Sara, Elín, Rannveig og Sylvía fórum á Vegamót að borða um kvöldið.

Ég var ekkert búin að borða allan daginn svo ég fékk mér soldið mikið að borða, hvítlauksbrauð í forrétt, burrito og franskar svo eftir á, og lots and lots af kóki!! Svo fórum við á Grettisgötuna og fengum okkur smá sonna smá, reyndar voru það eiginlega bara afréttarar fyrir mig og Söru, við fórum nefnilega út á föstudaginn, ætluðum bara að kikja en enduðum í bænum til 5 eða 6....!! Það var mjög gaman á grettisgötunni, það bættist alltaf við fleira og fleira fólk og við dönsuðum og trölluðum og sonna.. ;) rosa gaman!

Svo héldum við í bæinn, biðum í svona 20mín til hálftíma til að komast inn á ellefuna, mega desperate lið! Jæja, fórum þangað inn í hitakófið sem var þar inni og skemmtum okkur konunglega.

 Ég setti inn myndir af þessu öllu saman! (myndasíða)

 

 



Sylvía mín, gangi þér vel í Danmörku og hafðu það rosa gott þar!

Góða ferð krakkar mínir!


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 21:31:20 / Brynja

Nýja myndir

hey beibs, ég er búinn að setja inn myndir frá Litháen, London og brúkaupinu í Litháen. svo endilega skoðiði myndirnar! :lol:

Þær eru á myndasíða2! 

Brynja


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 21:52:51 / Ágústa

Hróarskelda 2006

Þá er maður komin heim eftir frábæra ferð fulla af óvæntum og skemmtilegum atburðum.Það er erfitt fyrir mig að segja með orðum hversu frábær þessi ferð var, þannig að ég ætla að láta myndirnar tala....: )

tjaldfélagar mínir voru stuðstelpurnar Björk og Gunna. Við skemmtum okkur alveg ótrúlega vel saman og lentum í ýmsum ævintýrum....

163652377.jpg

163650952.jpg

dögunum var eytt í að horfa á frábæra tónleika. Það sem stóð upp úr hjá mér voru t.d tónleikarnir með Sigur Rós, Morrissey, Death Cab for Cutie, Kaizers Ochestra, Franz Ferdinand, The Strokes, Kaiser Chiefs, dEUS, Kanye West......og ég gæti haldið endalaust áfram ; )

163641521.jpg

Við kynntumst mjög hressum og skemmtilegum stelpum sem voru í tjaldinu við hliðina á okkur. Mér fannst eiginlega ótrúlegt hvað það var rosalega mikið af íslendingum þarna og var farið í nokkur íslendingapartý!

163639617.jpg

163680941.jpg

untitledgrls.jpg

163652447.jpg

Stemningin var góð : ).......

163627551.jpg

163690669.jpg

og svo var ég rosa heppin og hitti frægt fólk! : )ég tók þessar myndir af Franz Ferdinand og talaði smá við þá!

franz2.jpg

franz.jpg

og hérna eru þeir og ég, rosa glöð að hafa hitt þá!

franz3.jpg

 

Svo hitti ég líka Kaiser Chiefs og söngvarinn var geðveikt næs! Þið kannist kannski við lagið ,,Everyday I love you less and less" sem er með þeim. Rosa gaman að hitta tónlistarmenn sem að maður hlustar á : ) Hérna er mynd af mér og söngvaranum í stuði!

untitled.jpg

kai.jpg

við enduðum svo ferðalagið í Kaupmannahöfn, í stuði eins og ávallt!

163624873.jpg

163623648.jpg

163623642.jpg

 

takk fyrir æðislega ferð stelpur! Er Hróarskelda 2007 svo ekki bara málið?....og við getum haldið áfram að syngja ,,I know you gonna want me"....:*

 

163684014.jpg


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 20:57:50 / Brynja

Þá er maður komin heim til gamla góða Íslands!

Á föstudaginn fórum við Sigþór til London alveg eldsnemma um morgunin frá Litháen, eða vorum komin til London kl. 7 að staðartíma. Við drösluðum okkur til London frá Gatwick og geymdum töskurnar á lestarstöð á meðan við vorum eitthvað að dandalast. Það var sól og svaka fínt, fórum í H&M og Topshop og sonna og ég keypti mér boli og buxur ;) Sigþór var orðin svo svaka þreyttur um miðjan dag, enda vorum við búin að vera vakandi frá því um nóttina, svo við fórum bara á lestarstöðina og til Bettý frænku. Hún býr í Orbington, sem er bær í og utan London, maður er svona í hálftíma í lest þangað frá Charing cross lestarstöðinni. Við vorum orðin svo mega þreytt í lestinni að við sofnuðum næstum því, bara aðeins að loka augunum og maður dottaði! ;) Bettý var svo góð að koma ná í okkur á lestarstöðina í Orbington, við vorum mjög fegin því enda soldið mikið þreytt... Bettý og Einar, maðurinn hennar, búa í svona týpísku bresku húsi, sem er hátt og mjótt, og öll húsin í hverfinu eru mjög svo lík, ef ekki eins! Soldið skemmtilegt ;) Þau eiga kisu sem heitir Simba! Alveg eins og minn! Jæja, við fengum okkur kaffi með Bettý og lögðum okkur svo aðeins. Svo gáfu þau okkur kvöldmat, grillaðar kjúklingabringur með bökuðum kartöflum og læti, ógeðslega gott ;) og við drukkum og höfðum það notó um kveldið.

 

Á Laugardaginn fórum við svo aftur til London til að skoða borgina aðeins. Við athuguðum hvernig staðan væri við London eye og sáum að það var megaröð svo við fórum ekki þangað, hefði verið gaman, því það var svo æðislegt veður í gær. En við löbbuðum að Big Ben og skoðuðum þá byggingu soldið, mega stórt allt saman. Svo gengum við að Westminister Abby og sátumst aðeins niður og fengum okkur kaffi og kók og sonna. Svo bara hélt labbið áfram, sáum eitthvað skilti sem benti á Buckinham Palace svo við ákváðum bara að rölta þangað, kannski ekki beint rölt, soldill gangur. Á leiðinni sáum við toy soilder búð, hjá einhverju safni, kíktum inn og það var megaflott. Fullt af pínulitlum hermönnum, svona handmálaðir, og alls kyns hermenn, breskir, bandarískir, einhverjir svona kameldýra hermenn og indjánar og margt fleira. Geðveikt flott, Sigþór keypti sér líka svona breskan vörð með svartan hatt og svona bás, mega flott! Ekkert ódýrt heldur...! ;) Við héldum áfram til hallarinnar og það var rosa flott, sérstaklega þá hringtorgið sem er fyrir framan höllina, sáum líka minnisvarða um Díönnu prinsessu, tók nú reyndar ekki mynd af því...svo fórum við í St. James garden (held ég) og löbbuðum þar í gegn á Piccadilly götuna, ætluðum að fara á Downing street en löbbuðum í vitlausa átt! ;) en við fórum Piccadilly og rákumst á sumarsýningu hjá Royal academy of arts og þar fyrir utan var risa skúlptur af konu, verkið heitir The Virgin Mother, hún er sem sagt ólétt og öðru megin er búið að fletta húðinni af henni svo maður getur sé fóstrið. En við fórum ekki á sýninguna því það kostaði inn, hefði farið ef það væri ókeypis :) En já, við héldum göngunni áfram, fórum á Soho, kíktum aðeins á fótboltann og fengum okkur að borða, Þýskaland-Svíþjóð, og Soho square, þar var mikið af hommum, urðum meira segja vitni að riflidi hjá einu parinu! Nutum garðsins vel og hvíldum okkur, héldum svo áfram og fórum í Covent garden...þá var klukkan orðin soldið margt svo við fórum í túbuna, eða underground, sem var soldið skrýtið, fullt fullt af fólki að troða sér í lestirnar, héldum að við værum eitthvað að spara okkur tíma, en svo var ekki, fórum út á næstu stöð og gengum bara á Charing cross til að komast til Orbington. Líst ekki alveg nógu vel á underground kerfið í London...komum til Orbington í partý hjá Bettý og Einari, fengum okkur bjóra, pökkuðum og fórum að sofa. Flugið var svo snemma, var semsagt komin heim til mín um hálf tólf í dag, og er eiginlega ekkert búin að sofa og hlakkar ekkert sérstaklega til að fara að vinna barasta á morgun....en ég ætla að setja inn myndir bráðum!

 

 



Sjáumst!


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 14:17:55 / Ágústa

Guðrún bloggar!

Hey hey!!

Ég er núna í vinnunni og það er mjög rólegt þannig að ég hef smá tíma til að skrifa. Ég held að það sé bara loksins komið sumar. Ég sá áðan manneskju úti í hlýrabol. Já það hlýtur að þýða að það er komið sumar!: ) Ég vona að þetta leiðindaveður sem er búið að vera undanfarið komi ekki aftur  fyrr en næsta haust. Sumarið líður rosa hratt og það er margt búið að gerast. En seinustu vikurnar eru nú samt ekki búnar að vera jafn spennandi hjá mér og hjá henni Brynju í Litháen! ; ) Ég fór t.d á Reykjavík Trópik og það var mjög fín upphitun fyrir Hróarskeldu. Helgina eftir hátíðina fór ég svo með fjölskyldunni í sumarbústað og það var mjög þægilegt að slappa af. Ég varð reyndar fyrir því óhappi að gleypa flugu, en annars gekk ferðalagið mjög vel! Og um seinustu helgi var svo 17. Júní og ég fór í bæinn bæði um daginn og kvöldið og skemmti mér bara ágætlega. Það er svo margt að gerast hjá mér þessa dagana! Ég er að fara að vinna á Aus ráðstefnu um helgina. Ég vona að þessi ráðstefna endi betur en seinasta ráðstefnan sem ég var að vinna á, en hún endaði upp á bráðamóttöku Borgarspítalans! Ég verð bara að reyna að fara varlega! Ég má ekki slasa mig svona stuttu áður en ég er að fara á Hróarskeldu. Ég er nefnilega að fara á miðvikudaginn í næstu viku og hlakka mikið til!: ) Það er svo gaman að hlusta á góða tónlist, ég vona bara að veðrið verði betra en þegar ég fór 2004. Þá rigndi næstum því allan tímann. En það kemur bara í ljós. Ég blogga svo meira þegar ég kem heim frá Danmörku og segi ykkur frá ævintýrum mínum!

hafið það gott og njótið sumarsins : ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 14:48:42 / Brynja

Tala fra Lithaen!

Hvad segidi a Islandi? Thad er allt gott herna en engir islenskir stafir eins og thid sjaid! En vid akvadum ad fa okkur lithaenskt numer thvi vid erum svo morg herna og mun odyrara ad hafa samband vid hvort annad og sollis. En ja, brudkaupid var i gaer og thad var mjog gaman. Soldid serstakt, thvi athofnin for fram a lithaensku og ensku, svo presturinn var frekar stressadur yfir thessu og svo voru lika fullt af myndavelum ad mynda athofnina. en mjog svo skemmtilegt ad fara i brudkaup. Pabbi Lorettu (brudurinn) for ad grata thegar hann var ad leida hana inn kirkjugolfid, soldid kruttlegt. En thetta for fram a annan hatt en heima, thvi tharna voru svaramenn og var Sigthor svaramadur brodur sins, en thad voru engar brudarmeyjar..Svo var veislan um 40 min utur baenum rett hja kastala. thad var semsagt vatn tharna og bru yfir i kastalan sem var a sereyju mjooog fallegt! THad var einhver 6 retta maltid og var madur ordinn mjog svo saddur eftir allan thennan mat! :) Svo var leikur til ad stytta okkur stundir og var hann thannig ad vid fengum blad og blyant og attum ad teikna manneskjuna a vinstri
hond vid mann og Sigthor teiknadi mig....eg var glaesileg..! haha...eda thannig ;) soldid fyndid! Svo komu einhverjir lithaenskir dansara og kenndu okkur ad dansa, eg var mjog dugleg ad taka thatt i thvi og dansa! thad var soldid gaman, svo nuna kann eg nokkur dansspor ;) ekkert serstaklega klar vid thetta, en sumir karlarnir voru einstaklega fyndir vid dansinn!!! Sigthor hreyfdi sig lika soldid en var ekkert ad dansa danssporin ;) ja, og svo donsudu loretta og agust (brudhjonin) fyrsta dansinn sinn, vid lagid dilemma og eg og sigthor forum svo a dansgolfid svo thau vaeru ekki ein...! hehe... en brandarinn vid thetta kvold, ad minu mati, var thegar Loretta kastadi brudarvendinum...og getid hver fekk hann...mikid rett, thad var eg!! og gledihropin og hlaturinn sem kom vid thad thegar eg greip hann! eg var eins og halfviti! thad var efnilega nanast enginn undankomuleid fyrir mig ad gripa vondinn ekki, thvi thad voru svona trestolpar i loftinu og thegar loretta kastadi vendinum lenti hann i trestolpann i loftinu og BeinT nidur i fangid a mer!! Otrulega furdulegt...! og til ad baeta thad tha
voru allar litlu systur hans sigthor bunar ad vera fyrr um daginn ad segja honum ad bidja mig um ad giftst ser, svo thad var buid ad vera soldil pressa a manni um daginn!! Hahaha...! ;) Fyndid..?

En ja, thad er buid ad vera mjog heitt herna og solin er allan daginn her og mjog fint. eg for i klippingu herna a fostudaginn fyrir um 2000kr islenskar a klippistofu og mer fannst hun klippa soldir mikid af harinu minu...! finnst eg bara vera stutthaerd en er samt alveg anaegd.. jamm vid erum semsagt med netid i ibudinn sem vid erum i, svo kannski ad eg bloggi eitthvad meira seinna, en get vitaskuld ekki sett inn neinar myndir fyrr en eg kem heim..svo segid mer endilega hvernig var a 17.juni og sollis, thad var allavega steikjandi hiti herna i gaer!

Sjaumst!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 23:33:31 / Brynja

.........................................................................................................................

Langa helgin búin og vinnan byrjuð aftur....vei!

Já, Anna Lilja hélt upp á afmælið sitt á kaffi vín síðasta föstudag og það var feikifínt!  Er meira að segja búin að setja inn myndir á myndasíðuna frá afmælinu ;)

 

Það er nú ekki mikið búið að gerast undanfarið nema þetta! Mar á svo mikið líf, sjáiði til! ég er nú reyndar að fara til útlanda í næstu viku, til Litháen og London, hlakkar mikið til að fá frí og komast til útlanda.

 

Ég er búin að vera velta því mikið fyrir mér hvað ég ætla að verða í framtíðinni og komst að því að bókmenntafræðin er ekki mitt fag svo ég skipti um grunnnám, var á tímabili alvarlega að hugsa um það að fara aftur í framhaldsskóla! En ég skipti yfir í viðskiptafræði, markaðsfræði, vegna þess það er bæði lestur og stærðfræði...!

 

Simbi er orðin venjulegur á ný og það er mikið gaman. Reyndar var hann svo mikið deyfður í dag að hann var hálf vankaður meiri hluta dagsins, alla vega var hann enn vankaður þegar ég kom heim um hálfsex í dag....! greyið litla...

Hafiði það gott í vikunni!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 11:00:04 / moomies

til hamingju með afmælið!!

Sætasta húsmóðirin á landinu á stórafmæli í dag! Til hamingju með tvítugsafmælið elsku Anna Lilja! Vonandi skemmtiru þér rosalega vel í kvöld : )

124905570.jpg


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 14:03:48 / Brynja

hæhæ!

smá tilkynning; ég var að stofna nýja myndasíðu vegna þess að hin er orðin full, vil helst ekki kaupa aðgang, skiljiði...! en það verða kannski meira af fjölskyldu minni á þeirri síðu. á líka eftir að eyða bara út myndaalbúmum á moomies síðunni! :D

hafiði það gott í vikunni! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 21:09:51 / Brynja

jólin koma, jólin koma.....neeee...!

Já, það er miðvikudagur í dag og frí á morgun!! Sofa út og hafa það notalegt á deginum sem Jesú steig upp til himna...jamm, einmitt.

Það hefur tekið svoldið andlega á að byrja vinna aftur...var þvílíkt dösuð í dag og er fremur fúl yfir því að veðrið sé ekki betra, maður er úti með krökkunum í hávaðaroki og það er kalt! Hellú! Á ekki að vera sumar?! Svo snjóaði eilítið í gær!!! Snjór..!

 

simbibleiki.jpg

Sigþór fór með Simbaló á spítalann á mánudaginn síðasta og við héldum að hann myndi losna úr umbúðunum, en nei, bara á annarri löppinni...hann er sem sagt í gifsi á vinstri löppinni og verður með það í tvær vikur í viðbót, þetta mun aldrei enda..! well það góða er að hann verður venjulegur þegar við förum út...

....talandi um það, þurfti að fá mér eitt stykki vegabréf og er búin að vera trassa það að fara og sækja um. Hefði nebbla átt að gera það áður en ég byrjaði að vinna...en jæja; ég fór í útlendingastofnun á mánudaginn og ætlaði að sækja um, en stelpan í afgreiðslunni sagði að myndin væri ekki í nógu góðri upplausn og mælti með því að ég færi í passamynda kassa og fengi mér mynd þar, jæja ég fer ýkt pirruð tilbaka í vinnuna og ekki búnað sækja um vegabréf; fýluferð. Á þriðjudaginn fer ég aftur í útlendingastofnun, með passamynd úr kassa, og þá segir konan mér þar, að það sé búið að færa vegabréfa umsóknar-dótið í lögreglustjórann í borgartúni!! Neeeiii...! sagði ég bara og dreif mig þangað, soldið pirruð og sollis, var sko að fara í hádegishléinu mínu. Jæja, ég kem í borgartún, bíð í fimm mínutur og þá segir konan hjá lögreglustjóranum að ég verði að vera með gamla vegabréfið mitt með mér..sem ég var ekki með...! Vá! Hugsaði ég bara og sagði held ég við konuna að þetta væri þvílíkt vesen....svo til að bæta þetta þá taka þau mynd af manni hjá lögreglustjóranum svo að passamyndirnar mínar dýru voru til einskis teknar...! þvilíkt og endemis rugl. Ég fer í morgun, því það opnar kl. korter í níu, og það var einhver fjölskylda á undan mér og tveir aðrir, og þessi fjölskylda var í einhverjar korter, tuttugu mínútur að vesenast þarna, ekki nógu góðar myndir og sollis, svo karlinn sem var á eftir þeim, tölvan fraus hjá konunni sem afgreiddi hann! ótrúlegt! Ég beið í hálftíma fyrir eitthvað sem tekur innan við fimm mínútur, bara af því að ég átti að vera mætt í vinnuna kl. 9, þá þarf maður náttla að koma extra seint....oohh...jæja en þetta gekk á endanum og ég fæ nýtt vegabréf eftir 9-10 virka daga sem gildir í fimm ár, held ég...!

fyrir utan það að þegar ég fer út í morgun ákvað ég að athuga hvort ég ætti ekki peninga og kemst að því að ég er alveg auralaus svo ég þurfti að fá Sigþór til að borga vegabréfið, frekar fúlt....að vera auralaus....!

 

hey, já, fór á da vinci code í fyrradag og hún var bara fín, reyndar mæli ég með að lesa bókina áður en séð er myndina...

fór á Ian Anderson tónleikana í gær, á boðsmiða, þeir voru mjög góðir, kannaðist reyndar bara við fjögur lög eða eitthvað sollis, en fannst gaman!

 

brynjaulla.jpg

Sumar, gleðjist gumar, gaman er í dag!

Sjáumst!


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 17:00:42 / Ágústa

Suomi voitti eilen, oli hieno ja herra Lordi on kaunis mies.....vitsi!

bonjour!!!

Þá er enn ein önnur vikan að klárast. Þessi einkenndist af miklu sjónvarps og kvikmyndaglápi.  Ég horfði á Eurovision bæði á fimmtudaginn og í gær. Þessi keppni er svo skemmtilega hallærisleg og full af hræðilegum lögum! Mér fannst fyndnustu atriðin vera gaurarnir frá Litháen, Rússneski strákurinn með frábæru hárgreiðsluna og svo Lettneska strákabandið með litla vélmennið! Hvað var málið með það? Frekar fyndið! Á fimmtudaginn fór ég í Samfylkingar-Eurovision partý á Hressó þar sem fríar veitingar voru í boði. Það var keppni í gangi þar og fólk átti að giska á hvaða lönd kæmust áfram í aðalkeppnina og ég tók þátt. Stundum er ég heppin og á einhvern ótrúlegan hátt þá vann ég keppnina og fékk bikar! Á honum stendur ,,Eurovisionfrík Samfylkingarinnar 2006". Frekar skondið og ég bjóst alls ekki við að vinna. Ég giskaði rétt á 8 lög af 10 sem komust áfram. Einu löndin sem komust áfram sem ég var ekki með rétt voru Litháen og Írland. En bjóst annars einhver við að Írland kæmist áfram?!
Í gær horfði ég svo á keppnina hjá Birnu og það var góð stemning. Mér fannst frábært að Finnland vann! Finnar eru svo skemmtilegir! Það er gaman að vita að Norðurlöndin eiga einhvern möguleika í þessari keppni. Nokkrir eftirminnilegir þáttakendur:

lat-reh2.jpg

Lettland, litla vélmennið var skemmtilegt!

 

dima-reh2.jpg

Rússarnir eru með nýjustu hártískuna á hreinu!

LT_united_KLIPO_STILL_02.jpg

Litháen, rosalega er sköllótti kallinn góður dansari!

lordi_pic_008.jpg

Ætli Finnunum hafi ekki verið heitt á Grikklandi í þessum búningum?

 

 

Á föstudaginn horfði ég á tvær bíómyndir, Match point og Red eye. Mér finnst Match point góð og ég mæli með henni. Red eye var hinsvegar týpísk formúlumynd með mjög fyrirsjánlegum endi og ég var næstum því sofnuð yfir henni. Svo horfði ég loksins á Lilja Forever um daginn og hún er alveg rosalega góð. Hún er  svo sorgleg og ég held að ég hafi ekki verið svona sorgmædd eftir bíómynd síðan ég horfði á Requim for a dream. En ég mæli samt með henni!

5.jpg

Ég er að fara í bíó í kvöld á Da Vinci Code. Ég las bókina fyrir um það bil 2 árum og mér fannst hún mjög góð. Ég hef nú reyndar ekki heyrt neitt sérstaklega góða hluti um þessa mynd, en mig langar samt að sjá hana og þessa æðislegu hárgreiðslu Tom Hanks! Flott ekki satt? Það er alltaf frekar skrytið að horfa á mynd gerða eftir bók sem að maður er búin að lesa. Ég er alltaf búin að ímynda mér persónurnar allt öðruvísi.

story.jpg

Ég ætla núna að hætta þessari leti og fara að taka til í herberginu mínu. Stay cool!

ágústa samfylkingar-eurovisionfrík


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 22:34:58 / Brynja

jæja, krakkar....

Silvía Nót

Silvía Nótt er ekki með í eurovision á laugardaginn..! manni finnst það nú vera fúlt, hefði verið gaman að vera djamma og djúsa yfir eurovision og sjá hana og co vinna þetta! En nei, austur evrópa er bara með í staðinn!!

Ég er byrjuð að vinna á leikskólanum, nánar tiltekið síðasta mánudag, og það tók svolítið á að vera byrjaður að vinna bara á fullu. Vera allan daginn á sama staðnum og geta ekki farið neitt! Ég var líka mega þreytt þegar ég kom heim úr vinnunni á þriðjudaginn og ekki til að bæta ástandið þá er ég í 45 mínutur, já 45 mínutur, á leiðinni heim með strætó eftir vinnu. Svo ég er búinn 5 en kem heim um 6!! Soldið leiðinlegt, langaði að skamma strætóbílstjóra í dag, því að það tekur svo langan tíma fyrir mig að komast heim....

Annars er lífið voðalega dauft þessa dagana....er bara þreytt....og hlakkar til að simbi losni úr öllum umbúðunum og geti farið að hlaupa og sonna um aftur. Hann er líka orðinn nett pirraður á þessu og er alltaf að reyna komast upp úr búrinu, hefur nú tekist nokkrum sinnum hjá honum...!

Mig langar í kjól!

Segið mér eitthvað sniðugt og skemmtilegt í athugasemdum ;)

Sí jú beibs!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4